Starfsárið 2006-2007
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er um þessar mundir að hefja sitt 14. starfsár.
Skólatónleikar skipa stóran sess í dagskrá vetrarins. Nú í haust hófust skólatónleikar í október þar sem á efnisskrá er tónverk eftir hollenskt tónskáld Theo Loevendie við ævintýrið um Næturgalann eftir H.C. Andersen. Þar eru á ferðinni 7 hljóðfæraleikarar, sögumaður og stjórnandi. Sögumaður er Aðalsteinn Bergdal. Í ár verður farið í skóla frá Ólafsfirði og allt austur á Raufarhöfn.
Næturgalinn verður síðan fluttur á Fjölskyldutónleikum laugardaginn 18. nóvember kl. 14:00 í Samkomuhúsinu á Akureyri (Leikhúsinu). Aðgangur að fjölskyldutónleikunum er ókeypis.
Aðventuveisla verður haldin í Íþróttahöllinni laugardaginn 8. desember.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Knattspyrnudeild Þórs bjóða til aðventuveislu. Dagskráin hefst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Með hljómsveitinni koma fram Hulda Björk Garðarsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Karlakór Dalvíkur. Á efnisskrá tónleikanna verður jóla og aðventutónlist. Að tónleikunum loknum verður boðið uppá jólahlaðborð frá Bautanum.
Þriðjudaginn 6. febrúar heimsækir Sinfóníuhljómsveit Íslands Akureyri og verður með tónleika í Íþróttahúsi Síðuskóla.
Efnisskrá:
Jón Leifs: Galdra Loftur, forleikur op. 10
Sergei Rakmaninoff: Tilbrigði um stef eftir Paganini
Dímítrí Sjostakovítsj: Sinfónía nr. 5 í dmoll op. 47
Einleikari: Lilya Zilberstein
Stjórnandi: Rumon Gamba
Strengjasveitatónleikar verða sunnudaginn 4. mars í Akureyrarkirkju. Tónleikarnir eru í samvinnu við Tónlistarskólann á Akureyri. Einleikari á tónleikunum er Lára Sóley Jóhannsdóttir fliðluleikari.
Fimmtudaginn 5. apríl, á skírdag verða tónleikar í Glerárkirkju. Á efnisskrá tónleikanna er konsert fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Max Bruch þar sem fiðluleikarinn Ari Þór Vilhjálmsson verður í aðalhlutverki. Einnig verður flutt sinfónía no. 5 eftir L. van Beethoven sem nefnd hefur verið Örlagasinfónían.
Samstarf við Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju, tónleikar sunnudaginn 6. maí. Á efnisskrá er Symphony no. 1 fyrir orgel og hljómsveit eftir F.A. Guilmant og Te Deum eftir A. Dvorak.
Kórastefna við Mývatn, tónleikar sunnudaginn 10. júní í Íþróttahúsinu Reykjahlíð Á efnisskrá tónleikanna er m.a. messa eftir John Rutter
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er Guðmundur Óli Gunnarsson.