Starfsárið 2007-2008
Ópera Skagafjarðar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er um þessar mundir að hefja sitt 15. starfsár. Efniskrá vetrarins verður fjölbreytt og hefjum við leikinn á Akureyrarvöku þann 25. ágúst þar sem Ópera Skagafjarðar í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sýna óperuna La Traviata eftir G. Verdi. Sýningin verður í íþróttahúsinu við Glerárskóla og hefst kl. 16:00. Ópera Skagafjarðar var stofnuð síðasta vetur og er La Traviata fyrsta verkefni hennar.
La Traviata var frumsýnd í Sæluviku Skagafirðinga í vor og hlaut einróma lof áhorfenda og gagnrýnanda.
Kristján Jóhannsson
Sunnudaginn 9. september verða tónleikar í Íþróttahöllinni með Kristjáni Jóhannssyni sem bera yfirskriftina "Fyrir mömmu". Með Kristjáni koma fram Sofia Mitropoulos sópran og Corrado Allessandro Cappita bariton. Á efnisskrá er m.a. aríur úr óperum eftir Verdi, Bizet, Mascagni og Leoncavallo. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson
Tónleikarnir eru í samstarfi við KA
Gabriel Fauré: Requiem
Sunnudaginn 28. október verða tónleikar í Glerárkirkju. þar sem flutt verður Requiem eftir Gabriel Fauré og óbókonsert eftir T. Albinoni. Einleikari á óbó er Gillian Haworth. Þessir tónleikar verða síðan endurteknir á Eskifirði laugardaginn 3. nóvember. Með hljómsveitinni syngur Kór Glerárkirkju og blandaður kór af Austurlandi. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Garðar Thor Cortes
Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Knattspyrnudeildar Þórs verða haldnir í Íþróttahöllinni laugardaginn 8. desember kl. 18:00. Með hljómsveitinni syngur Garðar Thor Cortes og söngfélagið Sálubót. Á efnisskrá tónleikanna verður jóla- og aðventutónlist. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Bjarte Engeset og Áshildur Haraldsdóttir
Sunnudaginn 3. febrúar kl. 16:00 verða tónleikar í Glerárkirkju. Á efnisskrá er flautukonsert eftir J. Ibert og sinfónía nr. 6 eftir L. van Beethoven. Einleikari á flautu er Áshildur Haraldsdóttir. Gestastjórnandi á tónleikunum er Bjarte Engeset.
Elfa Rún Kristinsdóttir
Á skírdag fimmtudaginn 20. mars leikur Elfa Rún Kristinsdóttir einleik í fiðlukonsert eftir A. Dvorak. Einnig verður á efnisskránni sinfónía no. 4 eftir Tchaikovsky. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Samstarf Tónlistarskólans á Akureyri og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Tónlistarskólinn á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verða með samstarfstónleika í Íþróttahúsi Glerárskóla sunnudaginn 20. apríl kl. 16:00. Einleikari á trompet er Vilhjálmur Ingi Sigurðarson.
Kórastefna við Mývatn
Tónleikar sunnudaginn 8. júní kl. 15:00 í Íþróttahúsinu Reykjahlíð. Á efnisskrá verður Carmina Burana eftir Carl Orff. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.