Markmið
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur það að markmiði sínu að að auðga menningarlíf íbúa á öllum aldri á landsbyggðinni og stuðla þannig að fjölbreyttara mannlífi og tónlistaruppeldi á svæðinu.
Markmiði sínu nær hljómsveitin:
› með samstarfi við tónlistarfólk á landsbyggðinni, kóra og aðra tónleikahaldara,
› með tónleikahaldi fyrir alla aldurshópa, fræðslu- og kynningarstarfi, svo sem með árlegum skólatónleikum,
› með því að byggja starf sitt fyrst og fremst á hljóðfæraleikurum af landsbyggðinni og gefa þannig starfandi tónlistarfólki þar tækifæri til að iðka og þróa list sína,
› með því að flytja sem fjölbreyttasta tónlist, sígilda sem nýja, og stuðla að frumflutningi nýrra verka eftir föngum.