Stjórnandi
Guðmundur Óli Gunnarsson hefur verið aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá stofnun hennar.
Guðmundur Óli stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Kópavogi og Tónlistarskólann í Reykjavík, en fór síðan til náms við Tónlistarháskólann í Utrecht í Hollandi og lauk þaðan prófi í hljómsveitarstjórn. Hann stundaði framhaldsnám hjá Jorma Panula í Helsinki og sótti nokkur námskeið í hljómsveitarstjórn. Guðmundur Óli hefur starfað sem hljómsveitarstjóri með Sinfóníuhljómsveit Íslands, bæði á tónleikum og við upptökur. Hann hefur komið fram sem stjórnandi Kammersveitar Reykjavíkur, Íslensku hljómsveitarinnar og er fastur stjórnandi CAPUT. Með CAPUT hefur hann komið fram bæði heima og víða erlendis. Hann hefur unnið upptökur fyrir útvarp og útgáfur hér heima og erlendis. Guðmundur Óli hefur stjórnað frumflutningi verka margra tónskálda, stjórnað óperuuppfærslum svo og kórum og hljómsveitum áhugamanna og nemenda.