Skipulagsskrá SN



Skipulagsskrá fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
1. gr.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er sjálfseignarstofnun með heimili og varnarþing á Akureyri.

2. gr.
Meginmarkmið Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er að stuðla með tónleikahaldi að auknu tónlistarlífi og menningarstarfsemi á Norðurlandi.

3. gr.
Stofnfé Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er 500 þúsund krónur. Stofnfé má ekki skerða.

4. gr.
Tekjur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru eftirfarandi:

a Framlag Menntamálaráðuneytis og Akureyrarbæjar samkvæmt sérstökum samningi þessara aðila og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,
b aðgöngumiðasala að tónleikum,
c gjafir og styrkir til Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,
d sala auglýsinga og styrktarlína í efnisskrár,
e sala á upptökum af tónleikum og
f aðrar tekjur.

5. gr. Hljómsveitarráð skal skipað 5 mönnum:
a Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar skipar 3 fulltrúa og skal einn þeirra vera formaður. Fulltrúar menningarmálanefndar skulu skipaðir til fjögurra ára eða til loka kjörtímabils bæjarstjórnar.
b Fastir hljóðfæraleikarar tilnefna árlega 2 fulltrúa. Fastir hljóðfæraleikarar í hljóm¬sveitinni teljast þeir sem starfa á Norðurlandi og hafa leikið með hljóm¬sveitinni a.m.k. þrisvar á undangengnu starfsári.
Hljómsveitarráð tekur allar meginákvarðanir er hljómsveitina varða svo sem um stefnu¬mörkun og framtíðarsýn, gerð fjárhagsáætlunar, ráðningu fastra starfsmanna svo og um samninga við tónlistarmenn. Hljómsveitarráð tekur einnig ákvarðanir um tónleikahald að fengnum tillögum verkefnavalsnefndar, sjá 7. gr.
Framkvæmdastjóri og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norður¬lands sitja fundi hljómsveitarráðs með málfrelsi og tillögurétti ásamt skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri.

6. gr.
Formaður boðar til funda í hljómsveitarráði. Honum er skylt að halda fund ef a.m.k. tveir stjórnarmenn krefjast þess. Fundur er ályktunarfær ef formaður og a.m.k. tveir hljómsveitarráðsmenn sækja hann. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundum en falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Gerðir hljómsveitarráðs skulu bókfærðar.

7. gr.
Þriggja manna verkefnavalsnefnd skal starfa í nánu samráði við hljómsveitarráð. Í henni sitja:
a aðalhljómsveitarstjóri
b einn fulltrúi hljómsveitarráðs
c einn fulltrúi fastra hljóðfæraleikara í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, tilnefndur til eins árs í senn.
Verkefnavalsnefnd á að gera tillögu að tónleikum og verkefnavali komandi starfsárs og leggja þær fyrir hljómsveitarráð til samþykktar eigi síðar en í lok janúar.

8. gr.
Reikningsár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er almanaksárið og skulu endur¬skoðaðir reikningar liggja fyrir ekki síðar en í mars ár hvert.

9. gr.
Leggist starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands niður, skulu eignir hennar varðveittar á vegum Tónlistarskólans á Akureyri uns komið hefur verið á fót að nýju sambærilegri eða svipaðri starfsemi en þá getur menningarmálanefnd Akureyrar ákveðið að ráðstafa eignunum til hennar.

10. gr.
Skipulagsskrá þessari má breyta að tillögu hljómsveitarráðs með samþykki bæjar¬stjórnar Akureyrar og menntamálaráðuneytisins. Leita skal staðfestingar Dóms- og kirkjumálaráðuneytis á þessari skipulagsskrá og hugsanlegum síðari breytingum.