Starfsárið 2009-2010



Dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands haustið 2009

Sagan af dátanum í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardaginn 17. október

Sagan af dátanum eftir Igor Stravinsky fjallar um hermanninn Jósef sem er á leið heim í 14 daga frí. Á leiðinni hittir hann Kölska í gervi gamals manns og selur honum fiðluna sína í skiptum fyrir bók sem á að færa honum óendanleg auðævi. Jósef kemst þó fljótlega að því að auðurinn færir honum ekki hamingju og hann þráir ekkert heitar en að vera fátækur á ný.

Verkið er leikhúsverk og notaði Stravinsky litla hljómsveit, þrjá leikara og ballerínu til að auðveldara væri að ferðast með verkið og sýna sem víðast. Verkið var frumflutt í Sviss í lok fyrri heimsstyrjaldar og er ádeila á græðgi og auðsöfnun - sem á erindi við okkur nú jafnt sem þá.

Þetta er samstarfsverkefni SN og LA. Leikarar og dansari koma frá Leikfélagi Akureyrar og 7 manna hljómsveit frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur á sviði undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.



Beethoven og Prokofieff á tónleikum í Glerárkirkju sunnudaginn 15. nóvember

Á tónleikunum þann 15. nóvember Á efnisskrá verða tvær sinfóníur, Sinfónía nr. 8 eftir L.van Beethoven og Klassíska sinfónían eftir S. Prokofieff. Einnig verður flutt verkið Sigfried Idyll eftir R.Wagner. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson



Aðventutónleikar á Austurlandi
Á aðventunni leggur SN land undir fót austur á land og haldnir verða aðventutónleikar á Eskifirði í samstarfi við Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar og kóra á austurlandi. Flutt verður m.a. Messa í C-dúr eftir W.A.Mozart og ævintýrið um Snjókarlinn eftir Howard Blake.



Gamalt og nýtt á tónleikum í Akureyrarkirkju 14. febrúar
Á þessum tónleikum teflum saman nýrri og gamalli tónlist. Á efnisskránni verður Fiðlukonsert eftir Hauk Tómasson þar sem Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari leikur einleik. Einnig verður flutt Sinfónía nr. 25 eftir W.A.Mozart. Við flutning sinfóníunnar fær SN til liðs við sig strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri. Eru þessir tónleikar samstarfsverkefni SN og TA.



Mendelsohn og Shostakowich á tónleikum þann 1. apríl, skírdag.
Sinfónía nr. 4 í A dúr “ítalska sinfónían” eftir F. Mendelssohn og Sellókonsert nr. 1 eftir D. Shostakowich er á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á skírdag. Einleikari á selló er Bryndís Halla Gylfadóttir.



Tónleikarnir í maí bera yfirskriftina Slagverk og strengir.
Á efnisskrá er Konsert fyrir marimba og strengjasveit eftir Ney Rosauro, Holberg svíta eftir E. Grieg og Kammersinfónía eftir D. Shostakowich. Einleikari á marimba er Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari.



Skólatónleikar -strengjakvartett.

Skólatónleikar skipa stóran sess í dagskrá vetrarins. Strengjakvartett mun að þessu sinni fara í skólana og kynna tónlist frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar. Farið verður í grunnskóla allt frá Siglufirði austur á Þórshöfn. Haldnir verða hátt í 30 tónleikar og er það Menningarráð Eyþings sem er stærsti styrktaraðili þessa verkefnis.