Starfsárið 2008-2009



Saga Dátans á Akureyrarvöku þann 30. ágúst
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í samstarfi við Leikfélag Akureyrar með tónleika á Marína Strandgötu 53. Flutt verður tónverkið Saga dátans eftir Igor Stravinsky. Verkið sem var frumflutt í Sviss í lok fyrri heimsstyrjaldar er ádeila á græðgi og auðsöfnun. Sögumaður er Aðalsteinn Bergdal og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.



Mozart í Glerárkirkju 19. október
Þar verða flutt verk eftir W. A. Mozart, konsert fyrir horn og hljómsveit nr. 2 í Es dúr og tvær sinfóníur eftir Mozart, annarsvegar nr. 1 og síðan nr 29. Einleikari á horn er Ella Vala Ármannsdóttir. Ella Vala er fædd í Svarfaðardal og stundaði nám í hornleik við Tónlistarskóla Dalvíkur og Tónlistarskólann á Akureyri. Lauk hún blásarakennara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og þaðan hélt hún til Þýskalands og síðar til Sviss þar sem hún er nú í framhaldsnámi. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.



Aðventuveisla 6. desember
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Knattspyrnudeild Þórs bjóða til aðventuveislu laugardaginn 6. desember í Íþróttahúsi Glerárskóla. Með hljómsveitinni syngja þau Dísella Lárusdóttir og Jóhann Smári Sævarsson. Einleikari á trompet er Vilhjálmur Ingi Sigurðarson. Einnig kemur fram með hljómsveitinni Kvennakór Akureyrar, stjórnandi kórsins er Jaan Alavere. Á efnisskrá tónleikanna verður jóla og aðventutónlist. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.



Orgeltónleiar í Akureyrarkirkju 25. janúar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00. Einleikari á orgel er Eyþór Ingi Jónsson og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá tónleikanna er Orgelkonsert í a-moll op. 100 eftir Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4 eftir Ludvig van Beethoven.



Kontrabassakonsert eftir Óliver Kentish - frumflutningur
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sunnudaginn 8. mars frumflytur Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari konsert fyrir kontrabassa og kammersveit eftir Óliver Kentish. Einleikarinn Þórir Jóhannsson er starfandi kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og er konsertinn sem Óliver kallar Ad Lucem saminn sérstaklega fyrir Þóri. Á tónleikunum verður einnig flutt Lítil sinfónía fyrir blásara eftir C. Gounod og Góði dátinn Sveik, svíta fyrir blásara. Tónleikarnir verða í Samkomuhúsinu á Akureyri og hefjast kl. 16:00. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.



Gloría í Glerárkirkju.
Á skírdag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 16:00 verða tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju. Á þessum tónleikum fær hljómsveitin til liðs við sig Kór Glerárkirkju og félaga úr Kammerkór Norðurlands við flutning á Glorðíu eftir Antonio Vivaldi. Einsöngvara á tónleikunum verða Helena G. Bjarnadóttir, Eydís S. Úlfarsdóttir og Sigrún Arngrímsdóttir. Á tónleikunum verður einnig flutt Canon fyrir strengi eftir Johann Pachelbel og Svíta nr. 3. í D-dúr eftir J.S. Bach. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.



Kórastefna við Mývatn 7. júní
Sextánda starfsári Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands lýkur síðan þann 7. júní með tónleikum á Kórastefnu við Mývatn. Flutt verður Messa í As dúr eftir F. Schubert. Þar koma fram með SN þátttökukórar á Kórastefnu við Mývatn. Einsöngvarar á tónleikunum eru Herdís Anna Jónasdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Benedikt Kristjánsson og Jón Svavar Jósepsson. Tónleikarnir eru haldnir í Íþróttahúsinu í Reykjahlíð og hefjast kl. 15:00.



Lykillinn – skólatónleikar
Á skólatónleikum í vetur verður flutt tónverkið Lykillinn eftir þá Tryggva M. Baldvinsson og Sveinbjörn I. Baldvinsson. Fjórtán manna sinfóníetta, sögumaðurinn Hannes Örn Blandon og stjórnandinn Guðmundur Óli Gunarsson heimsækja grunnskólana á Akureyri í febrúar.



Gloría í Glerárkirkju.
Á skírdag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 16:00 verða tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju. Á þessum tónleikum fær hljómsveitin til liðs við sig Kór Glerárkirkju og félaga úr Kammerkór Norðurlands við flutning á Gloríu eftir Antonio Vivaldi. Einsöngvarar á tónleikunum verða Helena G. Bjarnadóttir, Eydís S. Úlfarsdóttir og Sigrún Arngrímsdóttir. Á tónleikunum verður einnig flutt Canon fyrir strengi eftir Johann Pachelbel og Svíta nr. 3. í D-dúr eftir J.S. Bach. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.