Óperutónleikar
Afmælistónleikar í tilefni af 60 ára afmæli BM Vallár sem haldnir voru á Akureyrarvöku í ágúst 2006 eru komnir út á mynddiski. Þetta voru útitónleikar haldnir í Listagilinu á Akureyri þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands lék undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Með hljómsveitinni komu fram einsöngvararnir Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Kolbeinn Ketilsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Kristinn Sigmundsson. Viku fyrr voru þessir tónleikar fluttir á Menningarnótt í Reykjavík. Mynddiskarnir eru frábær minning frá þessum tónleikum sem voru einstakir, því ekki hafa áður verið fluttir utandyra óperutónleikar með 60 manna sinfóníuhljómsveit á Íslandi.
Diskurinn er seldur á skrifstofu Tónlistarskólands að Hvannavöllum 14 og allur ágóði mun renna í hljóðfærasjóð SN sem stofnaður var til minningar um Karl Petersen sem var einn af frumkvöðlum varðandi stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. . Diskarnir eru gjöf BM Vallár til hljómsveitarinnar sem kann fyrirtækinu bestu þakkir fyrir frábært framtak