Stúlkan í turninum
Gefinn hefur verið út geisladiskur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Um er að ræða tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson við ævintýrið um Stúlkuna í turninum eftir Jónas Hallgrímsson. Snorri Sigfús samdi tónverkið að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem flutti það á síðan á skólatónleikum í grunnskólum á Norðurlandi haustið 2005. Sagan fjallar um baráttu góðs og ills. Boðskpurinn er sígildur og skýr, hið góða mun sigra að lokum ef við sýnum nægilega trú og tryggð. Tónlistin túlkar söguna samhliða því sem hún er sögð. Upptaka á tónverkinu var gerð í tónlistarhúsinu Laugarborg í janúar árið 2006. Útgáfan er mjög vönduð og í bæklingi er ævintýri Jónasar prentað í heild sinni með myndskreytingum. Það er listakonan Veronica Nahmias sem bjó til myndir við söguna. Veronica er búsett í Hollandi og er vel þekkt þar í landi m.a. fyrir að myndskreyta barnabækur. Þá er í bæklingnum ritgerð eftir Pál Valsson sem hann nefnir Jónas og uglurnar. Steinabær gefur diskinn út og er hann fáanlegur í verslunum Pennans, 12 tónum og Íslenskri tónverkamiðstöð