Sagan



Frá árinu 1987 starfaði fyrirrennari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Kammerhljómsveit Akureyrar, á ýmsan hátt með svipuðu sniði og SN. Nokkrir tónleikar voru haldnir á hverjum vetri undir stjórn ýmissa stjórnenda en oftast kom Roar Kvam þar við sögu. Hljóðfæraleikarar voru kennarar og nemendur við Tónlistarskólann á Akureyri með stuðningi nokkurra aðkomuhljóðfæraleikara, sem oft voru brottfluttir Akureyringar eða fólk með önnur tengsl við Akureyri. Bakhjarl hljómsveitarinnar var áhugamannafélag sem myndaði stjórn og aðstoðaði við framkvæmd tónleika í sjálfboðavinnu. Hljómsveitin fékk nokkurn fjárstuðning frá Akureyrarbæ.

Þegar Kammerhljómsveitin var farin að skipa fastan sess í tónlistarlífi Akureyrar var farið að vinna að því að styrkja stöðu hennar, m.a. með því að afla styrkja frá ríkisvaldinu. Áhugamannafélag um Kammerhljómsveit Akureyrar var lagt niður og stjórn Tónlistarfélags Akureyrar falið það hlutverk að skipa 3 fulltrúa í hljómsveitarráð á móti tveimur fulltrúum fastra hljóðfæraleikara og einum fulltrúa menningarmálanefndar Akureyrar. Haustið 2002 var skipulagsskrá hljómsveitarinnar breytt þannig að nú skipar stjórn Akureyrarstofu þá fulltrúa sem stjórn Tónlistarfélagsins skipaði áður. Nafni hljómsveitarinnar var breytt og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands formlega stofnuð haustið 1993. Hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika undir nýju nafni 24. október það ár undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar sem verið hefur aðalhljómsveitarstjóri frá síðan. Frá þeim degi hefur hljómsveitin flutt fjórar til fimm efnisskrár á hverju ári og leikið nánast allar tegundir klassískrar tónlistar frá barokk til nútímatónlistar. Haldnir hafa verið tónleikar víða á Norðurlandi þó aðaltónleikastaður sé Akureyri, heimavettvangur hljómsveitarinnar.

Rekstrarframlag
Hljómsveitin fær rekstrarframlag frá Akureyrarbæ og ríkinu samkvæmt sérstökum samningi þessara aðila og hefur það framlag stóraukist á síðustu árum.

Skólatónleikar
Reglulegir skólatónleikar hófust fyrir nokkrum árum þar sem lítil hljómsveit hefur heimsótt skóla á Akureyri og í nágrenni og leikið fyrir nemendur, kynnt þeim hljóðfæri og fengið þá til að taka þátt í tónlistarflutningi.

Samningur milli SN og FÍH
Haustið 2005 var undirritaður kjarasamningur milli Sinfóníuhljómsveiar Norðurlands annarsvegar og Félags íslenskra hljómlistamanna hinsvegar um kaup og kjör hljóðfæraleika í SN.

Samstarf
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur átt samstarf við ýmsa aðila varðandi tónlistarflutning. Má þar m.a. nefna Kórastefnu við Mývatn og þátttöku SN í Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju.

Viljayfirlýsing
Í september 2005 var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf um tónlistarflutning milli Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar á Eskifirði. Tilgangur með þessu samstarfi er að gefa tónlistarfólki og kórfólki bæði á Austur- og Norðurlandi aukin tækifæri til listsköpunar. Miðað er við eitt samstarfsverkefni á ári.