Starfsárið 2010-2011



Þann 21. júní 2010 var skráð - Nánar um tónleikana

Starfsárið 2010-2011





Sautjánda starfsári SN lokið



Þann 2010. desember 04 var skráð - Nánar um tónleikana

Sautjánda starfsári SN lokið





Bryndís Halla Gylfadóttir einleikari með SN



Þann 17. mars 2010 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Tónleikar í Glerárkirkju Fimmtudaginn 1. apríl (skírdag) kl. 16:00





Fiðlukonsert í Akureyrarkirkju



Þann 8. desember 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Tónleikar í Akureyrarkirkju 14. febrúar 2010 kl. 16:00





Tónleikar á Eskfirði



Þann 18. nóvember 2009 var skráð - Nánar um tónleikana

Aðventutónleikar í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 29. nóvember kl. 16:00





Tónleikar á Eskfirði



Þann 18. nóvember 2009 var skráð - Nánar um tónleikana

Aðventutónleikar í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 29. nóvember kl. 16:00





Tónleikar í Glerárkirkju



Þann 30. október 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Tónleikar í Glerárkirkju sunnudaginn 15. nóv. kl. 16:00





Sagan af dátanum í Samkomuhúsinu á Akureyri



Þann 08. október 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Sagan af dátanum





Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Starfsárið 2009-2010



Þann 27. september 2009 var skráð - Nánar um tónleikana





Heimssýn og staðarhrif



Þann 11. júní 2009 var skráð - Nánar um tónleikana

Hátíðartónleikar á 7. Kórstefnu við Mývatn 2009, sunnudaginn 7. júní, kl.15:00. umfjöllun: Jón Hlöðver áskelsson. á efnisskrá: Verk eftir Lars Jansson, Snorra Sigfús Birgisson, Jón Nordal, Rachmaninoff,Thomas Morley, Jaakko Mäntyjärvi, Mendelssohn, Norman Luboff, Elenor Daley, Bart Howard, J. Haydn, Schumann, Brahms, Poulenc og Schubert.





Kórastefna við Mývatn 7. júní



Þann 07. júní 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Flutt verður Messa í As-dúr eftir F. Schubert ásamt þátttökukórum á Kórastefnu við Mývatn.





Gloría í Glerárkirkju



Þann 25. mars 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Á skírdag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 16:00 verða tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju.





Kontrabassakonsert - frumflutningur



Þann 02. febrúar 2009 var skráð - Nánar um tónleikana - Kaupa miða á tónleikana

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sunnudaginn 8. mars frumflytur Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari konsert fyrir kontrabassa og kammersveit eftir Óliver Kentish.

Einleikarinn Þórir Jóhannsson er starfandi kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og er konsertinn sem Óliver kallar Ad Lucem saminn sérstaklega fyrir Þóri.

Á tónleikunum verður einnig flutt Lítil sinfónía fyrir blásara eftir C. Gounod og Góði dátinn Sveik, svíta op. 22 fyrir blásara og slagverk eftir Robert Kurka

Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson

Tónleikarnir verða haldnir í Samkomuhúsinu á Akureyri, Leikhúsinu, sunnudaginn 8. mars og hefjast kl. 16:00.

Miðasala á midi.is og í miðasölu LA, Hafnarstræti 57.





Orgelkonsert á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands



Þann 09. desember 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Sunnudaginn 25. janúar kl. 16:00 eru tónleikar í Akureyrarkirkju þar sem einleikari verður Eyþór Ingi Jónsson. Á efnisskrá tónleikanna verður konsert fyrir orgel og hljómsveit eftir Marco Enrico Bossi (1861-1925) og Sinfonia nr. 4 eftir L. van Beethoven (1770-1827). Stjórnandi á tónleikunum er er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Forsala aðgöngumiða er í Pennanum Hafnarstræti.  Verð aðgöngumiða í forsölu er kr. 1500-  Miðaverð við innganginn er kr. 2000-

Aðgangur ókeypis fyrir 20 ára og yngri.





Dísella og Jóhann Smári á Aðventutónleikum SN



Þann 06. nóvember 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Íþróttahúsi Glerárskóla laugardaginn 6. des. kl. 18:00

Með hljómsveitinni koma fram  söngvararnir Dísella Lárusdóttir og Jóhann Smári Sævarsson ásamt Kvennakór Akureyrar

Einleikur á trompet: Vilhjálmur Ingi Sigurðarson

Stjórnandi:  Guðmundur Óli Gunnarsson

Miðasala:Penninn Eymundsson, Hafnarstræti Akureyri

Hamar félagsheimili Þórs v/Skarðshlíð

Miðaverð kr. 2.500.-





Sinfóníuhljómsveit Íslands



Þann 28. október 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Þriðjudaginn 4. nóvember kl. 20:00 mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tónleika í íþróttahúsi Síðuskóla.  Einsöngvari á tónleikunum verður Kristján Jóhannsson og stjórnandi Petri Sakari.

Aðgangseyri á tónleikana verður mjög stillt í hóf eða 1.000 kr. miðinn. Hægt er að tryggja sér miða á tónleikana með því að fara inn á vef Sinfóníuhljómsveitar Íslands http://www.sinfonia.is/

Á efnisskránni eru íslenskar söngperlur og frægar aríur eftir Puccini og Leoncavallo. Auk þess verður leikin fimmta sinfónía Beethovens, karnivalforleikur Dvoráks og tveir kaflar úr hinni ástsælu tónlist Griegs við Pétur Gaut.





Mozart á tónleikum í Glerárkirkju



Þann 29. september 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Tónleikar SN í Glerárkirkju 19. októberkl. 16:00

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þann 19. október verður sannkölluð Mozartveisla.  Á efnisskrá tónleikanna verða tvær sinfóníur eftir Mozart og einnig verður fluttur konsert fyrir horn og hljómsveit.   Mozart samdi sína fyrsttu sinfóníu þegar hann var aðeins 8 ára gamall og hefjast tónleikarnir á því verki, Sinfónía no. 1 í Es dúr.  Því næst verður fluttur konsert fyrir horn og hljómsveit nr. 2 í Es dúr.  Tónleikunum lýkur síðan á Sinfóníu no. 29 í A-dúr. Einleikari á horn er Ella Vala Ármannsdóttir og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson 

Ella Vala Ármannsdóttirer fædd íSvarfaðardal árið 1980 Hún hóf að leika á horn við Tónlistarskóla Dalvíkur hjá Eiríki Stephensen og hélt áfram námi hjá Sveini Sigurbjörnssyni í Tónlistarskólanum á Akureyri. Á árunum 1997-2003 stundaði hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Joseph Ognibene. Lauk hún þaðan blásarakennara- og einleikaraprófi. Árin 2003-2006 hélt Ella Vala áfram námi við Musikhochschule Freiburg im Breisgau. Þaðan lauk hún Diplómu með 1. einkunn.  Nú er hún í framhaldsnámi í Schola Cantorum Basiliensis í Sviss við náttúruhornleik.

Ella Vala er stofnmeðlimur kammersveitarinnar Ísafoldar, hefur verið lausráðin hjá Sinfoníuhljómsveit Íslands síðan 1999 og leikið m.a. með Hljómsveit Íslensku óperunnar, Sinfoníuhljómsveit Norðurlands, Orkester Norden og Freiburger Barocksolisten.





Saga dátans á Akureyrarvöku 30. ágúst



Þann 28. júlí 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í samstarfi við Leikfélag Akureyrar verður með tónleika á Akureyrarvöku. Tónleikarnir verða á Marína Strandgötu 53 og hefjast kl. 17:00.

Aðgangur er ókeypis.

Flutt verður Saga dátans eftir Igor Stravinsky. Verkið fjallar um hermanninn Jósef sem er á leið heim í frí. Hann hvílir sig á leiðinni, tekur upp fiðluna sína og leikur á hana. Í því kemur Kölski til hans í gerfi gamals manns og falast eftir fiðlunni. Jósef vill ekki selja fiðluna en þá býður Kölski honum bók í skiptum sem muni færa honum óendanleg auðæfi. Kölski sanfærir Jósef um að bókin sé mun meira virði en þessi ódýra fiðla og þeir hafa skipti. Jósef uppgötvar þó fljótt að auðurinn færir honum ekki hamingju og hann þráir það að verða fátækur á ný.

Verkið sem var frumflutt í Sviss í lok fyrri heimsstyrjaldar er ádeila á græðgi og auðsöfnun.

Þetta er leikhúsverk, skrifað fyrir litla hljómsveit, þrjá leikara og ballerínu. Í þessari uppfærslu er þó einungis notast við sögumann, sem bregður sér einnig í hlutverk hermannsins og Kölska.

Sögumaður er Aðalsteinn Bergdal og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.





Starfsárinu lokið



Þann 23. júní 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur lokið sínu 15. starfsári. Næsta starfsár hefst með tónleikum á Akureyrarvöku þann 30. ágúst. Nánar auglýst síðar.





Carmina Burana á Kórastefnu við Mývatn



Þann 26. maí 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Tónleikar sunnudaginn 8. júní kl. 15:00 í Íþróttahúsinu Reykjahlíð. Á efnisskrá verður Carmina Burana eftir Carl Orff.Carmina Burana er safn miðaldakvæða sem austurríska tónskáldið Carl Orff tónsetti og er sungið um ástir og fegurð, glaum og gleði í afar litríkum hljómsveitarbúningi.

Flytjendur ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er tæplega 200 manna kór og einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson og Einar Clausen.

Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.





100 ára kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðarbæjar



Þann 24. apríl 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Þann 1. júní fagnar Hafnarfjarðarbær 100 ára kaupstaðarréttindum sínum. Haldnir verða hátíðartónleikar í Haukahúsinu í Hafnarfirði kl. 17:00 þar sem hljómsveit undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar skipuð félögum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Kammersveit Hafnarfjarðar leikur. Einleikari á klarinett er Ármann Helgason og einsöngvari Elín Ósk Óskarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Ágúst Ólafsson. Einnig koma fram kórar frá Hafnarfirði.





Samstarf Tónlistarskólans á Akureyri og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands



Þann 27. mars 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Blásum til veislu!

Sunnudaginn 20. apríl kl. 16:00 leika saman nemendur og kennarar Tónlistarskólans á Akureyri ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í íþróttahúsi Glerárskóla. Einleikari á trompet er Vilhjálmur Ingi Sigurðarson sem um þessar mundir er að ljúka mastersnámi frá Síbelíusarakademíunni í Helsinki.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskólinn á Akureyri hafa átt afar farsælt samstarf. Til margra ára tóku nemendur skólans þátt í aðventutónleikum hljómsveitarinnar en nú síðastliðin þrjú ár hefur SN helgað eina tónleika samstarfi þessara stofnanna, þar sem nemendur skólans spila með í hljómsveitinni og einleikarar koma úr röðum fyrrverandi nemenda skólans. Á tónleikunum 20. apríl verða 30 hljóðfæraleikarar hljómsveitarinnar úr röðum nemenda TA.

Efnisskráin verður fjölbreytt, m.a. verður á efnisskránni Sverðdansinn A.Khachaturian, Carmen svíta eftir G. Bizet, þættir úr svítu eftir I.Stravinsky og trompetkonsert eftir J. Haydn.





Vilhjálmur Ingi Sigurðarson



Þann 27. mars 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Vilhjálmur Ingi Sigurðarson fæddist á Akureyri árið 1980 og ólst upp í Eyjafjarðarsveit. Hann lærði á trompet við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og síðar við Tónlistarskólann á Akureyri til ársins 2000. Vilhjálmur lauk blásara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2003. Aðalkennari hans var Ásgeir Hermann Steingrímssson. Vilhjálmur fór sama ár í framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Osló hjá Prófessor Jan Frederik Christiansen sem er 1. trompetleikari Fílharmoníusveitar Oslóar. Hann útskrifaðist með Cand magister gráðu vorið 2005. Vilhjálmur stundar nú Mastersnám við Sibelíusarakademíuna í Helsinki hjá prófessor Jouko Harjanne og Touko Lundell og mun útskrifast í vor. Meðfram náminu í Helsinki hefur hann m.a. leikið með finnsku óperunni í Helsinki, sinfóníuhljómsveit skólans óperuhljómsveit í Espoo og ýmsum kammerhópum.

Vilhjálmur hefur spilað með fjölda hljómsveita og kammerhópa á Íslandi og erlendis. Má þar helst nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Hann er fastur meðlimur í Kammersveitinni Ísafold sem nýlega fékk íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar- og samtímatónlistar.





Tchaikovsky og Dvorák



Þann 26. febrúar 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Tónleikar 20. mars.2008

Á skírdag fimmtudaginn 20. mars kl.16:00 í Glerárkirkju leikur Elfa Rún Kristinsdóttir einleik í fiðlukonsert eftir A. Dvorak. Einnig verður á efnisskránni sinfónía no. 4 eftir Tchaikovsky. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Forsala hafin í Pennanum í Hafnarstræti
Miðaverð í forsölu kr. 1.500
Miðaverð við innganginn kr. 2000





Elfa Rún Kristinsdóttir einleikari á tónleikunum 20. mars



Þann 24. febrúar 2008 var skráð - Nánar um tónleikana

Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari er fædd á Akureyri árið 1985. Hún hóf fiðlunám fjögurra ára gömul hjá móður sinni Lilju Hjaltadóttur. Síðar nam hún m.a. hjá Guðnýju Guðmundsdóttur. Elfa Rún útskrifaðist úr Tónlistarháskólanum úr Freiburg í Þýskalandi í febrúar 2007 með hæstu einkunn undir handleiðslu Prof. Rainer Kussmaul.

Elfa Rún hefur tekið þátt í fjölmörgum námskeiðum, þar á meðal Lucerne Festival Academy í Sviss þar sem Pierre Boulez var aðalstjórnandi. Einnig hefur hún sótt meistarnámskeið meðal annars hjá Zahkar Bron, Antje Weithaas og Artemis Kvartettnum.

Elfa Rún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Royal Chamber Orchestra Tokyo og Akademisches Orchester Freiburg í Þýskalandi.

Hún er fastur meðlimur Kammersveitarinnar Ísafoldar, Camerata Drammatica og Solistenensemble Kaleidoskop í Berlín en hefur einnig leikið með fjölda annarra hljómsveita þar á meðal Balthasar Neumann Ensemble og fleirri kammerhópa í Þýskalandi. Hún hefur mikinn áhuga á flutningi barokktónlistar og hefur á síðustu árum meðal annars unnið með Trevor Pinnock og Thomas Helngelbrock.

Elfa Rún hlaut fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach tónlistarkeppninni í Leipzig 2006. Hún var valin "Bjartasta vonin" á Íslensku tónlistarverðlaununum 2006 og hlaut einnig hvatningarverðlaun Evrópska menningarsjóðsins Pro Europa 2006. Elfa Rún er tilnefnd "flytjandi ársins" á Íslensku tónlistarverðlaununum sem afhent verða þriðjudaginn 18. mars.





Bjarte Engeset og Áshildur Haraldsdóttir



Þann 12. desember 2007 var skráð - Nánar um tónleikana

Sunnudaginn 3. febrúar kl. 16:00 verða tónleikar í Glerárkirkju. Á efnisskrá eru verk eftir Johan Halvorsen, Harald Sæverud, flautukonsert eftir J. Ibert og Sinfónía nr. 6 eftir L. van Beethoven. Einleikari á flautu er Áshildur Haraldsdóttir. Gestastjórnandi á tónleikunum er Bjarte Engeset.

Forsala hafin í Pennanum í Hafnarstræti

Miðaverð í forsölu kr. 1.500

Miðaverð við innganginn kr. 2000





Stúlkan í turninum



Þann 02. desember 2007 var skráð - Nánar um tónleikana

Gefinn hefur verið út geisladiskur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Um er að ræða tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson við ævintýrið um Stúlkuna í turninum eftir Jónas Hallgrímsson.

Snorri Sigfús samdi tónverkið að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem flutti það á síðan á skólatónleikum í grunnskólum á Norðurlandi haustið 2005.

Sagan fjallar um baráttu góðs og ills.

Boðskpurinn er sígildur og skýr, hið góða mun sigra að lokum ef við sýnum nægilega trú og tryggð.

Tónlistin túlkar söguna samhliða því sem hún er sögð.

Upptaka á tónverkinu var gerð í tónlistarhúsinu Laugarborg í janúar árið 2006.

Útgáfan er mjög vönduð og í bæklingi er ævintýri Jónasar prentað í heild sinni með myndskreytingum.  Það er listakonan Veronica Nahmias sem bjó til myndir við söguna.  Veronica er búsett í Hollandi og er vel þekkt þar í landi m.a. fyrir að myndskreyta barnabækur.  Þá er í bæklingnum ritgerð eftir Pál Valsson sem hann nefnir Jónas og uglurnar. Steinabær gefur diskinn út og er hann fáanlegur í verslunum Pennans, 12 tónum og Íslenskri tónverkamiðstöð





Aðventutónleikar 8. desember Garðar Thór Cortes



Þann 26. nóvember 2007 var skráð - Nánar um tónleikana

Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Knattspyrnudeildar Þórs verða haldnir í Íþróttahöllinni laugardaginn 8. desember kl. 18:00. Einsöngvari á tónleikunum verður Garðar Thór Cortes og Söngfélagið Sálubót syngur einnig með hljómsveitinni. Einleikari á fiðlu er Lára Sóley Jóhannsdóttir.

Á efnisskrá tónleikanna verður jóla og aðventutónlist.

Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Miðasala í Pennanum Eymundsson Hafnarstræti Akureyri

Miðaverð kr. 5.000