Starfsárið 2010-2011

21. júní 2010

18. starfsár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands hefst með þátttöku hljómsveitarinnar í vígslu Hofs laugardaginn 28. ágúst. Þetta eru afar merk tímamót í sögu hljómsveitarinnar því að Hof gjörbreytir allri aðstöðu hennar sem fær nú langþráð húsnæði til æfinga- og tónleikahalds.

Í tilefni þessara tímamóta var Hafliða Hallgrímsson tónskáld fenginn til að semja tónverk, hátíðarforleik sem hann nefnir HYMNOS og frumfluttur verður við þetta tækifæri. Sunnudaginn 29. ágúst verða síðan hátíðartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi. Einleikari á tónleikunum er Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.

Á efnisskrá tónleikanna er Píanókonsert eftir E. Grieg, Sinfónía nr. 9 eftir A. Dvorák og einnig verður endurtekið verk Hafliða HYMNOS.

Flutningur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í HOF opnar á ýmsa möguleika fyrir hljómsveitina og nú er verið að undirbúa skólatónleika SN sem haldnir verða í Hofi í október 2010. Leitað var samstarfs við Bernd Ogrodnik brúðuleikgerðarmann og Leikfélag Akureyrar um að taka ævintýrið um Pétur og úlfinn eftir Prokofieff til flutnings og setja upp á sviðinu í HOFI með leikbrúðum.

Glæsilegir aðventutónleikar SN verða í byrjun desember. Á þeim tónleikum syngja systkinin Páll Óskar og Diddú með hljómsveitinni.

Slagverk og strengir verður yfirskrift tónleika í janúar en þá verður Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari í aðalhlutverki.

Í febrúar mun SN ásamt rokksveitinni Dúndurfréttum flytja eitt helst þrekvirki rokksögunnar, The Wall eftir Roger Waters og Pink Floyd.

Í lok febrúar tekur SN þátt í tónleikaröð sem nefnist Klassík í Hofi. Á þeim tónleikum koma fram strengjakvartett og blásarakvintett skipuð félögum úr SN.

Í apríl, nánar tiltekið á skírdag, tekst hljómsveitin á við stór hljómsveitarverk, má þar m.a. nefna Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky og verk eftir D. Shostakovich.

Í maí verður á dagskrá stórt samstarfsverkefni SN og Tónlistarskólans á Akureyri. TA fær til sín góða gesti frá Danmörku, 60 manna unglingahljómsveit frá Kaupmannahafnarsvæðinu. Það verður því stór hljómsveit sem stígur á svið í Hofi á þeim tónleikum þegar nemendur TA ásamt dönsku hljómsveitinni og SN sameinast.

Tvennir tónleikar eru ráðgerðir í samstarfi við Græna hattinn. Í september verður Gunnar Þórðarson á ferð með Vísnabókina og fær til liðs við sig félaga úr SN. Seinni tónleikarnir í samstarfi við Græna hattinn verða í nóvember þar sem hljómsveitin Hjaltalín leikur með SN.